top of page

Vörulýsing

Falleg svunta með bökunaráhaldamunstri. Hún er með stillanlegum böndum sem gerir hana einstaklega þægilega og klæðilega.

Svuntan er úr 55% hör og 45% bómullarblöndu. Efnið hefur yndislega náttúrulega áferð og miðlungs þyngd. Allar svuntur eru handgerðar á Íslandi.

 

Sending

Sendingarkostnaður innanlands 500Kr.

Sendingarkostnaður utanlands 1.000Kr

Ef þú kaupir eftirprent eða listaverk á sama tíma og þessa svuntu verða vörurnar sendar í tveimur mismunandi umslögum. Þetta er gert til að halda sendingarkostnaði lágum en á sama tíma tryggja að allt komist á leiðarenda í fullkomnu ástandi.

 

Um listaverkið

Ég málaði þessi bökunaráhöld og gerði úr þeim munstur árið 2018. Alveg frá því ég gerði munstrið hef ég séð það fyrir mér á svuntum. Það er því einstaklega ánægjulegt að bjóða upp á þá vöru.

Svunta með bökunaráhaldamunstri

7.000krPrice
    bottom of page